Image for Article

  1. október 2024

Haustfagnaður Lífeyrisdeildar Sameykis

Lífeyrisdeild Sameykis stendur fyrir haustfagnaði fyrir félagsfólk Lífeyrisdeildar fimmtudaginn 31. október 2024, kl. 12:00 í Gullhömrum í Grafarholti, Þjóðhildarstíg 2.

Boðið verður upp á lambasteik og purusteik ásamt meðlæti. Í eftirrétt er súkkulaðifrauð og kaffi.

Hera Björk Þórhallsdóttir syngur og skemmtir gestum og Grímur Sigurðsson ásamt félögum spila fyrir dansi.

Verð er kr. 5.000 á mann.

Reikningur verður sendur í heimabanka. Félagsfólk má bjóða með einum gesti á fagnaðinn. Síðasti dagur til að skrá sig er föstudagurinn 25. október.

Skráning á haustfagnað